Brostu til okkar og þá brosum við til þín :*
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1464 dögum
Selma fer til Flórída :D
04.04.2008 19:15:55 / selma-margret

Liðið undir lok?

!!

Jæja ég mundi nú svona tjaa.. giska á það að þessi síða væri liðin undir lok..;)
En allavega mun ég halda áfram að halda úti bloggsíðu og setja allar myndir þar..:D svo að ég læt vita af mér..:)

en bæjó;*


!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.03.2008 01:19:55 / thelma-lind

leeeiðist

Tæknilega eru komnir páskar þannig að ég ætla að byrja á því að óska ykkur gleðilegra þannig :) Óska ykkur gífurlegs spiks og bólna í leiðinni:) ..Svona fyrir þá sem ætla sér í páskamat ofan á náttúrulega páskaeggið/in sjálf/t.

En já, það er pólsk stelpa byrjuð að vinna með mér, hún talar bara ensku svo að ég er á fullu með enskukunnáttuna í vinnunni, en allavega við vorum að tala um the easterbunny um daginn. Það er nefninlega þannig að í Póllandi hafa þau ekki páskakanínu, reyndar ekki mikið hérna heldur en eitthvað höfum við fengið af þessari vitleysu vegna þess að ég man eftir því þegar ég var lítil að vakna og byrja á því að leita að páskaegginu/eggjunum mínum, hvað er þetta og hvaðan er þetta komið og af hverju?

Þetta eru mínar pælingar í dag. Það yrði forvitnilegt að vita hvaðan páskakanínan er komin líka..

En já..

eins og ég segi, gleðilega páska, hafið það gott, ég fæ víst ekki að njóta þeirra þar sem ég er að vinna.. það góða við páskana mína er að ég verð á hátíðarkaupi í 7 tíma. YAY!

.. good night, don't let the bad bugs bite :D;*



e.s. Hvað varð um að það séu alltaf páskaungar í Kringlunni?


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.03.2008 21:18:27 / thelma-lind

Kanína í rusli

:)

Það er svona þegar maður hefur ekkert að gera nema læra, þá hugsar maður loksins um að blogga, svo að ég ætla að skella inn einu stuttu:) Annars átti Lilja Sóley að vera næst en það nær víst ekki lengra. En jáá..

Var að vinna í dag til 17 og kom þá heim og horfði á Good Luck Chuck, sem var fáránlega fyndin :D Ætlaði svo að horfa á No Country For Old Men en hún var svo leiðinleg að ég sofnaði og Birkir hætti að horfa, sem er undarlegt vegna þess að hún vann fjöldan allan af Óskarsverðlaunum, annars er það kannski venjan að leiuðinlegustu myundirnar fái stundum bestu dómana vegna framúrskarandi myndtækni eða eitthvað álíka subbulegt.



Nóg um kvikmyndir og verðlaun samt, ætla að lýsa fyrir ykkur andstyggð minni á auglýsingum, það er nefninlega þannig að ég skil ekki hvernig fólk ætlast til að selja vörurnar sínar með þessu móti, jújú allt í lagi að auglýsa þegar þú hefur eitthvað almennilegt, en þetta er orðið eins og kappsmál um hver er asnalegastur, ef einhver veit hvað ég er að tala um sérstaklega, rétt upp hönd,, já nefninlega ÁVAXTATOPPUR, ÁVAXTATOPPUR.. Hvað annað? Og jú, Sykurskert kókómjólk. Svo fylgja smokkaauglýsingarnar fast á eftir.

Þú vaskar ekki upp án uppþvottahanska?

Ásta fór norður í dag og ég öfunda hana ekkert smá, ég vil fá djúsí ferðasögu þegar þú kemur heim! Hefði nú verið alveg til í að fara memm. En sumir þurfa að vinna.

En já, lokamál á dagskrá er Harðskafi, nýjasta bók Arnaldar Indriðasonar, þeim fræga sakamálarithöfundar. Það er nefninlega málið að ég hef lengi verið mikill aðdáandi skrifa hans en leiðinlegt er að segja að því meira sem ég les eftir hann, því meira minnkar aðdáun mín á honum, innihaldið er alltaf það sama einhvernveginn, vesen á dótturinni sem er að reyna að bæta sig, Erlendur náttúrulega að rannsaka og hefur lítinn tíma til annars og að lokum, bróðirinn sem fórst. Leiðinlegt að segja þetta en já, á einhverjar 75 bls eftir and I've got to say: I'm not impressed:(



Kannski reddar karlinn þessu í endann, sæl að sinni:*

Thelma Lind ;*

annars þá reyndi ég að ná mynd af Aríel minni þar sem hún var búin að koma sér vel fyrir í ruslafötunni, litli kjáninn! En myndavélin er í einhverju fokki.


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.03.2008 14:05:02 / thelma-lind

Hvíldardagur :)

:)

Vaknaði snemma í morgun og hélt til kirkju í tilefni dagsins. Það hef ég víst ekki verið dugleg við að undanföru svo að það var fínt að komast á samkomu, en við erum að tala um að ca hálf ættin var þarna:O .. Bara af ættingjum mínum og mökum þeirra voru þarna; Amma, Afi, Elsa, Silla, Pabbi, Binna, Snorri, Inga, Stebbi, Palma, Binni, Melkorka, Alexander, Gabríel, Mikael, Helga, Marta, Ég, Aron, Viktoría og Fjóla Dögg. Ég held ég sé ekki að gleyma neinum en já.

Langar bara að kasta inn kveðju og eitthvað.. En Lilja er næst og stelpur, bið ykkur um að ýta á hana að blogga þegar þið talið við hana, hún á það skilið :D

Af vinnu og skóla er það að  frétta af mér að ég fékk mér frí í kvöld, Viktoría ætla að gista og skemmtilegheit :) En annars er ég að vinna ..

Sunnudag 11-17
Mánudag 19-24
Þriðjudag 9-17
Miðvikudag 9-17
Fimmtudag (skírdag) 11-17
Föstudag (langa) 19-24
Laugardag 11-17
Sunnudag (páskadag) 17-24
Mánudag (annan í páskum) 11-17
Þriðjudag 17-24
Miðvikudag - byrja í skóla og vinn frá 17-24

Jæja, nóg að sinni. Ætla ekki að hafa þetta langt,
þangað til næst,
Thelma :)

» 5 hafa sagt sína skoðun

12.03.2008 15:56:24 / selma-margret

Selma mætt..!

Jæja ætli það sé ekki komið að Lilju í röðinni núna... en hverjum dytti nú í hug að hún myndi blogga? Tjaa.. ekki mér allavega..:)

En það er nú afskaplega lítið að frétta af betri fjórðungi landsins. Nema náttúrulega að Þórduna hélt stórkostlega árshátíð á dögunum sem ég að sjálfsögðu skellti mér á í kjól og fínt fínt, ásamt Andra, Öru, Ara, Rakel, Stebba og Sigga Braga :D Aldeilis fríður hópur þar á ferð held ég..:D

(hræææðileg mynd af mér..)

Lítið annað að frétta.. ég held að það sé komið að Lilju Fripple sækópaþþ að blogga sko... Lilja mín láttu í þér heyra og komdu nú með fréttirnar, ekki veðrið...


Gaggalagúúúú.... Var þetta sexý?

(einkahúmor hér að ofan fyrir þá sem ekki skilja)

en bless í bili og kíkið og kvittið á mæspesið mitt -- selma_margret :D


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.03.2008 00:27:45 / ásta-kristín

Hæhæ

 Ásta hér..;)

Nei Thelma mín það var nú ekki á döfinni hjá mér að láta blessuðu síðuna drepast.
Þó að ég hafi haft lítið að gera uppá síðkastið þá skal ég nú svona gera mitt besta við það að blogga e-ð. Eins og flestir vita þá erum ég og Gummi hætt saman.:s
Og hef ég fengið lítinn frið frá karlmönnum eftir það..:$
Ég get t.d sagt ykkur skondna sögu um það þegar ég ákvað að labba upp í sjoppu og kauða mér inneign.. Ég fer nebbla yfirleitt uppí spöng og versla þar en til tilbreytingar þá ákvað ég að fara í O.B sem er í allt annarri leið. Þegar ég kom þangað þá fékk ég þær fréttir að inneignir væri ekki seldar hjá þeim...8| Þá ákvað ég semsagt að fara upp í Spöng og þegar þangað var komið þá fékk ég mína inniegn og ætlaði bara að kveikja mér í sígó og halda heim á leið... en nei ég var ekki með kveikjara, kemur þá ekki afgreiðslumaðurinn út og kveikir sér í sígó, ég spyr hann hvort hann geti ekki lánað mér eld og það gerir hann ,síðan spyr hann hvað ég er gömul ég segi honum það ætla siðan að labba í burtu heyri ég þá ekki kallað "MÉR FINNST ÞÚ ÓTRÚLEGA SÆT!" 8| 
........Ég horði hálf vandræðaleg til baka.... og sagði " jáhh takk fyrir það....og takk fyrir eldinn... vertu blessaður..." Jámm... svona er þetta víst þegar karlmenn fá ekki nóg að ríða..

Aðra sögu hef ég að segja frá því að ég var á msn. Þá kemur strákur sem ég hef ekki talað við í 2 ár eða svo og spyr mig "Ertu ekki ennþá á ríðimarkaðinum?" Þetta er setning sem ég hélt að ég myndi aldrei heyra ertu að grínast í mér...? Þetta er víst e-ð nýyrði..
Ein stór spurning hvernig svarar maður svona???
Endilega kommentiði!!

Jæja Thelma mín nú ertu búin að fá hálf tilgangslaust blogg frá mér;) 
Sátt?? 


» 12 hafa sagt sína skoðun

06.03.2008 15:49:43 / thelma-lind

stelpur !

...ætlið þið að láta síðuna drepast ?

er ekki í góðu skapi í dag.. skil ekki í því að kennarar þurfi að hella yfir okkur heimavinnu svona rétt fyrir og yfir páskafríið. Það er orðið þannig að í páskafríinu þarf ég að lesa 3 kjörbækur, eina í íslensku, eina í ensku og eina í dönsku. Og ég er ekki byrjuð! Auk þess sem próf er úr 6 íslendingaþáttum eftir páskafrí, er búin að lesa þá alla en býst fastlega við því að þurfa að lesa þá alla aftur í gegn. Svo er ég að vinna alla daga páskafrísins míns þannig að hér verður nóg á döfinni.

Fyrir páska: Þarf að horfa á mynd og undirbúa mig fyrir það að hafa eina klukkustund til að skrifa ritgerð um myndina á dönsku. Ritgerðina skal skrifa í tíma, engar glósur, ekki neitt. Bara skriffæri og orðabók.
Stærðfræðipróf á mánudaginn, skil ekki boffs í þessu.
Skil á leiðréttingu úr söguprófi á mánudaginn, 1 og 1/2 bls. ritgerð.

Svo er náttúrulega allt litla heimanámið ofan á allt þetta. Get ekki beðið eftir að vera búin með skóla og geta farið að gera eitthvað sem ég hef áhuga á.

En ég hef svona nokkurnveginn ákveðið það að halda áfram í Kvennó, ætla að fara á morgunn og panta tíma hjá námsráðgjafanum og spjalla við hana um að taka menntaskólann á þremur árum. Það yrði draumur ! Ég myndi þá taka kannski 3-4 áfanga í sumar, íslensku, dönsku, ensku og eitthvað sem ég þarf ekki miklar útskýringar á, kannski sögu. Og já, kannski einn til tvo fleiri áfanga á vetur og þá ætti allt að vera tipp topp:)
Þarf samt að tala við Ingveldi um þetta allt saman :) Væri alveg til í að losna við dönsku hjá Auði :/

En já, nóg af skólanum.

Er að fara að reyna að drösla mér í að þrífa eldhúsið og stofuna og fara svo í gegnum smá stærðfræði.. Kannski klæða mig og eitthvað fyrst?

Er að vinna um helgina.

Æ, veistu.. stelpur bloggiði!!! ég nenni ekki meiru.

-Thelma


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.02.2008 17:33:18 / thelma-lind

Helgi, loksins !

:)



Jæja, loksins er komin önnur helgi:D Hef verið að bíða eftir henni aaalveg síðan síðustu helgi, haha. En ég var búin að hlakka til að vera í fríi alla helgina en nei, mín var beðin um að vinna á morgunn og ég kann ekki að segja nei :/ svo að ég er að fara að vinna á morgun:S Nenni því enganveginn:( En svona er þetta.. en jákvæða hliðin er sú að þetta er morgunvakt, bara frá 10-17:D En þá kem ég heim, í sturtu og reyni eitthvað að gera mig sæta og svo koma Ásta og Gummi í nautalundir.. mmm.. en já, verð í fríi allan sunnudaginn :D En þá þarf ég að kíkja á pabba, ömmu og eitthvað..

En já, ég er að fara að vinna alla daga páksafrísins svo að það verður voða lítið hægt að hafa samband við mig en 6 dagana verð ég á morgunvakt, annaðhvort 9-17 eða 10-17;) En ef allt gengur upp þá verð ég með 17 vaktir á stimpilkortinu mínu í lok launatímabilsins :D Sem er flott, venjulega er ég ekki með nema ca. 12-13 og það er þá með aukavöktum....

En nóg um vinnuna, Birkir sæti er í nálastungu, er búinn að vera lasinn og að drepast í bakinu og eitthvað þannig að hann kíkti í nálastungu, ég skil það ekki. Fólk borgar fyrir það að láta hamra í bakið á sér og hnakka með hnefum og lófum, stappa á sér og að lokum stinga sig með prjónum/nálum, hvað er það?

Annars var ég að horfa á Brokeback mountain, myndin hefur verið mikið í umræðum meðal vina, kunningja og fjölmiðla síðan kærastinn minn, Heath lést í janúar:( en mer fannst kominn tími til að ég sæi hvað allur asinn væri um. Og ég get með sanni sagt að mér leist alls ekkert á að kærastinn minn, Heath, væri að gamna sér með öðrum karlmanni, jújú sumir eru bara þannig en ekki hann Ledger minn. Annars var þetta allt í lagi, nema hvað að ef ég væri að halda framhjá, hvað þá með manneskju af sama kyni, þá myndi ég nú aaaðeins passa mig betur, ekki fara í sleik útá tröppum með manninn minn og börn inni. En svona er þetta :)


Annars finnst mér hann sætari þegar hann er ekki með barta.. Ekki að það skipti máli þegar ástin er til staðar.. ;)
sshh.. ekki segja birki samt:O


En jæja, nóg af því.
Hafið það öll gott um helgina.
Tékkið myndirnar frá síðustu helgi :)

-Thelma



» 2 hafa sagt sína skoðun

27.02.2008 00:43:19 / thelma-lind

Skóli á morgun?



:)
Langaði að kasta inn kveðju svona fyrst ég er vakandi og í tölvunni.. Annars má byrja á því að minna á 2 blogg frá Ástu hér að neðan, er ekkert smá stolt af stelpunni :D
Ætla að segja aðeins frá hvað hefur á daga mína drifið frá því að ég bloggaði síðast, sem var á miðvikudaginn en þá sagði ég ykkur frá því að ég var að þrífa.

Á fimmtudaginn var ég í fríi í skólanum og svaf yfir mig í morgunpartýið til Rannveigar svo að ég horfði bara á árshátíðarmyndina hérna heima kl. 10 um morguninn! Fannst hún reyndar ekkert spes.. En eftir það horfði ég á einhverja desperate housewives þætti og tók svo strætó í Kringluna þar sem ég hitti Ástu sem var að versla sér föt og skart:)

Á föstudaginn vakti Lilja mig um 10 um morguninn og sagði mér að Selma væri á leiðinni til mín svo að ég dröslaði mér frammúr, beið eftir henni, fór svo í sturtu og gerði mig reddý, við komum við í FB og vorum eitthvað að stússast allan daginn, svo sóttum við Ástu í vinnuna og við Ásta og Gummi fórum heim til mín þar sem Birkir var, við pöntuðum okkur pitsu og biðum eftir stelpunum, þá var smá spilakvöld, ferlega gaman:)

Á laugardaginn var vinna, horft á Butterfly on a wheel og Mean Girls..

Á sunnudaginn vaknaði ég um 11 og horfði á einn Friends, fór og horfði á Jittu mína keppa í körfubolta og svo fórum við saman til ömmu í pönnsur :D og svo fór ég að vinna..

Í gær fór ég ekki í skólann því ég var eitthvað slöpp, dröslaði mér samt í vinnuna:/

 Í dag fór ég heldur ekki í skólann en var að lesa íslendingaþætti í allan dag..
Er að farast úr verkjum og er búin að vera að bryðja verkjatöflur í allan dag :/ Ætla að sjá til hvort ég fari í skólann á morgunn :S ég allavega þarf að læra fyrir sögupróf og eitthvað vesen .. er ekki að nenna þessu.

Á fimmtudaginn er ég að fara að vinna en svo er ég í fríi um helgina sem verður mjög fínt:)

Við Birkir vorum líka að ákveða að vera bara heima um páskana, nennum ekki norður svo að ég páskadag ætlum við bara að hafa það ótrúlega gott, borða súkkulaði, kannski hafa mynd og svo ætlar hann að elda kalkúnabringur:)

En já, Birkir færði mér þær fréttir áðan að við værum að fara til Parísar á næsta ári og ég er bara að reyna sem minnst að hugsa um það því að ég veit að ég verð vangefin af æsingi og spenningi og svo framvegis, ég er nú þegar að tapa mér yfir London en eftir París þá vil ég fara til sólarlands, reyndar verð ég bara að fara að fara að stunda ljósabekki eða eitthvað, er eins og næpa orðin, ég bara einfaldlega nenni ekki að drulla mér í ljós..

Annars væri líka fínt að fá smá sól hingað bara ?

ég er að verða vitlaus á þessum eilífa snjó!!!

En jæja, nenni ekki að skrifa meir... þetta er örugglega leiðinlegasta blogg í heimi en þið áttuð það skilið fyrir að kommenta aldrei, nema þú inga mín:)

-thelma sem meiðir sig svo mikið:(



» 5 hafa sagt sína skoðun

25.02.2008 16:49:03 / selma-margret

Rauðir kjólar á óskarnum!

Mikið var um rauða kjóla á Óskarsverðlaunahátíðinni sem haldin var í nótt í Kodak leikhúsinu.
Kvikmyndastjörnurnar í Hollywood létu hvassviðri ekkert á sig fá og og sýndu stoltar framleiðslu tískuteiknara á rauða dreglinum.



Helen Mirren var glæsileg í rauðum satínkjól
 með silfurperluskreyttum ermum,
sem fór vel við rautt sviðið.




Katherine Heigl var í rauðum kjól frá Escada.




Anne Hathaway var í rauðum siffonkjól.




Heidi Klum mætti með manni sínum Seal,
og var í rauðum silkikjól frá John Galliano.
Og hannaði skatgipina sem hún bar sjálf.



Cameron Diaz var einnig í Diorkjól sem Galliano hannaði.

Það var einnig mikið um klassíska svarta kjóla, hér sjáum við Hillary Swank
í kjól frá Atelier Versace.







Jennifer Garner var í hlíralausum kjól frá Oscar de la Renta og bar skartgripi frá
Van Cleef og Arpels.




Penelope Cruz var í dökkbláum kjól
frá Canel.




Nicole Kidman  ver í svörtum satínkjól sem huldi
 það mjög vel að hún á von á barni.



Tilda Swinton var í heldur einkennilegum kjól.

En þær sem mest skáru sig úr voru:



Kelly Preston sem var í saffranlituðum kjól
 frá Roberto Cavalli



Renée Zellweger var í flegnum perluskreyttum kjól frá
Carolina Herrera.



Julie Christie var ein fárra í hnésíðum kjól en hann
var frá Lana Marks og var skreyttur  rúbínum og safírum
og var metin á jafnvirði 7 milljóna króna.

*Ásta*

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.02.2008 17:31:37 / selma-margret

Ásta hér..

Jæja maður verður nú víst að fara að taka sig saman í andlitinu og fara að blogga eitthvað. ;) Bara svona í tilefni af því að ég er ógeðslega löt og er ekkert búin að blogga síðan við stofnuðum þessa blessuðu síðu..:^):$ Það hefur ýmislegt gengið á hjá mér t.d. það að ég var rekin úr skólanum fyrir mjög lélega mætingu. :$ Ég er ennþá að vinna í Leikfangadeildinni í Hagkaup sem er bara gaman ;):haha: Gummi kallinn var rekinn úr Toy's *r* us. Og fór að vinna hjá Póstinum;)

Við vorum einmitt að koma af árshátíð hjá póstinum í gær.;) Sem var bara virkilega skemmtileg. Við tókum Hummerlimmuna á staðinn, allir voru ótrúlega fínir þetta var bara geggjað.  Laddi var veislustjóri , Garðar Thor Cortes , Páll Óskar og Magni með á móti sól voru að spila.:d ég hef ekki skemmt mér svona mikið allt of lengi ég vill fá að þakka því fólki sem var með mér í gær fyrir alveg hreint frábært kvöld.
Ég setti líka að öllum líkindum heimsmet í að gera mig til fyrir kvöldið á 5 klukkutímum tókst mér að fara í klippingu og litun, kaupa mér kjól, skó og fylgihluti fara heim í bað, raka á mér lappirnar, slétta á mér hárið, klæða mig og mála mig :d;) Þetta þetta hlítur að ver einhverskonar met sko.;)

Svo var það náttla líka meyjukvöldið á föstudaginn sem var mjög skemmtilegt, Ég, Selma, Telma, Lilja, Aníta og Ara vorum heima hjá Thelmu blönduðum kokteila og spiluðum party og co. alveg geggjað fjör það koma myndir af því fljótlega. Selma mannaði sig upp í að hringja í Kidda "undirhaka Jóns" og drullaði svona helvíti vel yfir hann útaf 10.000 kallainum sem hún lánaði Öllu "feitabollu" fyrir einu og hálfu ári. ;):lol:

Í einu orði sagt frábær helgi ;)

*Ásta*

   


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.02.2008 17:15:12 / thelma-lind

Búin að bíða:)

:)
Ákvað að blogga. Ingibjörg er víst að verða vitlaus af bloggleysi okkar vinkvenna svo að ég sló til þar sem ég sat hvort eð var fyrir framan tölvuna ;)
Það sem er að frétta af mér er bara það að nú eru tjarnadagar þannig að ég var í skólanum í gær frá 1-2:30 í hárumhirðu og sprey, voða gaman  og í dag var ég bara á bókasafninu frá 8-11:) Þegar ég kom heim horfði ég á eina mynd, rölti út á leigu að skila henni og hef svo verið að taka alla íbúðina í GEGN.. Er uppgefin, á samt bara eftir að þurrka af stofuborðinu, eldhúsborðinu, bekknum og 3 gluggakistum og þá meika ég ekki meir.. Jú, þarf reyndar að brjóta saman smá þvott, en er ég dugleg eða hvað?

Birgitta mágkona er að koma til Reykjavíkur í dag og ætla hún og vinkona hennar að borða með okkur, ég ætla að elda fisk, ofnbakaðan í einhverri sósu.. hafa grænmeti og læti ;)

Annars hef eg lítið verið að gera nema í skólanum og vinnunni.. Er reyndar í fríi í hvorutveggja á morgun :D Þá verður slappað af og ekkert annað. Selma kemur til Reykjavíkur á morgun líka :D Svo er ég að vinna á föst, lau, sun og mán.. moneymoney! 

Fór á Gettu Betur á föstudaginn, það var GEÐVEIKT en við töpuðum eftir fimmfaldan bráðabana :( En hefðum samt ekki átt að tapa:/ Það hefði aldrei orðið bráðabani ef við hefðum fengið rétt fyrir eina spurningu sem vi svöruðum rétt en fengum bara vitlaust fyrir :/ og þau geta ekki endurtekið keppnina eða breytt úrslitunum þó svo að þau viðurkenni fúslega mistök sín.. Kjánalegt:S



En jæja, nóg í bili.. Þarf að fara að klára þrifin:D

-thelma;*


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.02.2008 16:03:11 / thelma-lind

'olá

:)
Hurðu stelpur, næst vil éf fá blogg frá annaðhvort Lilju eða Ástu, annars sakar svosem ekki að heyra frá Selmu reyndar :)
En ég ætla bara aðeins að láta heyra í mér..

Það var ótrúlega næs á afmælinu okkar Birkis, fórum út að borða góðan mat og svona, ætluðum svo í bíó en það var svo BRJÁLAÐ veður að við vildum ekki vera að ferðast eitthvað, enda var marg varað við því ío útvarpinu, svo að komum bara við úti á leigu að leigja spólu og kaupa smávegis nömm ; ) Leigðum Disturbia, frekar góð en ég hafði þá tilfinningu að ég hefði séð myndina áður, ótrúlega skrítið því ég veit að það hef ég ekki gert:/ En svo var hún frekar fyrirsjáanleg.. En við Birkir allavega kúrðum og horfðum á hana saman og höfðum það notalegt:) 


En já, á að vera að fara að vinna núna en hún Olla ætlar að mæta fyrir mig og ég þá í staðinn á morgunn, er nefninlega að fara í próf á morgunn. Animal Farm. Við erum að tala um ömurlega bók! Bylting Stalín færð yfir í dýralíki eða eitthvað, en já.
Sá Reign over me í gær...

Einstaklega leiðinleg mynd og það gerist nákvæmlega ekki neitt í henni:)

En já, úr kvikmyndum í kvörtun.. Hvernig mynduð þið taka þessu:

Ring, ring
Svar
thelma: hæ
einhver: hæ, ég heiti eitthvað og ég hringi frá gallúp, mætti ég spyrja þig nokkurra spurninga?
thelma: nei því miður
einhver: má ég hringja aftur seinna?
thelma: ég myndi kjósa að þú gerðir það ekki
einhver: allt í lagi, bless.
thelma: bless

Nokkrum dögum síðar hringir sama númerið aftur

Ring, ring
Svar
thelma: ég var búin að segja ykkur að ég vildi ekki að þið hringduð
Skellt á.

Síðan þá hafa þau hringt milljón sinnum, snemma á morgnanna, seint á kvöldin.. Allt saman ! Og ég hata þetta .. og er hætt að nenna að svara .. 

Hvernig mynduð þið taka þessu ?

Ju, svarið er ábyggilega það að þið mynduð taka því þannig að ég hefði ekkert við ykkur að segja og hætta að hringja, ekki satt?

Svo gallúp.. YOU SUCK :)

-thelma kvartari;*


» 11 hafa sagt sína skoðun

07.02.2008 22:04:03 / thelma-lind

Á morgun, á morgun !!

:D

Jæja, nú er árs túlofunar afmæli okkar Birkis bara á morgun! Ég trúi því bara ekki hve hratt þetta hefur liðið.. Ég fékk gjöfina mína núna í vikunni, fótanuddtæki (setur svona vatn í og eitthvað;), blóm og bók:D Og Birkir fékk gjafirnar sínar í dag :D Gaf honum bindi, bók og tvo pakka af uppáhalds kaffinu hans, Jamaica Blue Mountain (dýrasta kaffi í heimi:|) En í tilefni afmælisins þá ætlum við eitthvað rómó út að borða og fara svo í bíó.. á örugglega ps. i love you, ég las bókina og hún er ein sú besta sem ég hef lesið! En aftur á móti þá er forsýningin á morgun þannig að það er ekkert alltof víst að við fáum miða..

En nóg um það, hef óskaplega lítið að segja, er bara að fara að vinna um helgina, um að gera að vinna eins mikið og hægt er þar sem maður er að fara til London:D (179 dagar). Aríel mín er farin að elska mömmu sína rosalega mikið, er farin að fatta að ég er ofsalega góð, hleypur út um allt og er alltaf rosa hress, líður ekkert smá illa að þurfa að skilja hana alltaf eina eftir þegar ég fer út á morgnanna. Hún er farin að kúra hjá mér uppi í sófa og finnst æðislegt þegar ég klappa henni og klóra, við erum meira í að kúra (þó svo að við leikum nú líka) en hún og pabbi sinn eru meira í að leika sér :) En allavega. Ég ætla að fara að raka á mér leggina  og plokka augabrúnirnar og eitthvað:D Stuð. 
-Thelma :D;**

» 4 hafa sagt sína skoðun

02.02.2008 15:40:42 / selma-margret

Nautabani í súkkulaðibaði:D

 30425.gif
Hver er farinn að hlakka til sumarsins??

Heil og sæl öllsömul, ég ákvað að blogga smá... lofa því ekki að þetta verið jákvætt blogg.!

En þannig er mál með vexti að það er óógeðslega mikill snjór hérna á Akureyri, eða allavega á reykvískan mælikvarða;) En já, ég Selma Margrét er alltaf með blöðrubólgu (það er ekki smitandi og það er ekki kynsjúkdómur hehh) En það er nú ekki gott fyrir blöðrubólgufólk að vera úti í kulda svo að ég er bara mest inni þessa dagana:) Var bara uppí rúmi að kúra með kallinum í gær:) Horfðum á the heartbreak kid, sem er ágæt sko

En já ég er búin að vera bara frekar dugleg í skólanum, fyrir utan að ég þurfti því miður að fara heim nokkra daga útaf blöðrubólgu, en ég reyndi mitt besta en annars er ég búin að vera að læra og læra og læra heima. Var að gera sálfræðiverkefni um dagin fékk 7.1 fyrir það (féll á tíma) og svo var ég í prófi í þýsku fékk 7.7 í því:) Svo á ég eftir að fá fyrir NÁT verkefnið mitt og SÁL prófið og Smilluprófið í dönsku (ef ég fæ ekki 9-10 því verð ég brjáluð;).

 En já.. svo ég tali nú um e-ð skemmtilegt ha...?:) Þá er ég sennilegast að fara að keyra suður með múttu túttu, smá gellu ferð, suður á Fimmtudaginn:) Þannig að það er kokteil-spilakveld ?:D Haa? Stelur;) Eigum við að vera heima hjá Thelmu eða Lilju eða Ástu eða mér? Svariði;)

HVER Á SAFAPRESSU???

En jæja ég ætla að fara að hanga í tölvunni og vera inni þangað til það verður búið að gera skódann ökuhæfan svo að ég geti farið heim og náð í föt og gellast aðeins.. En ég var í litun í gær, ekkert smá ánægð:) Svo eru það neglur á mánudaginn..:D

 

Bless í bili;*

selma margret sverris!

 


» 13 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Heimsóknir
Í dag:  5  Alls: 12144
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1383 dögum
Birkir, Thelma, Ásta og Gummi fara til London :D
Könnun
♥ Hvað vantar á síðuna?♥